Beggan í orlofi

Þarna þekki ég þig!

31.01.2007 15:34:12 / bensen

hananú

Ný síða...

www.bensen.bloggar.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 12:37:23 / bensen

...

eitt annað...92 heimsóknir í dag.. gerir aðrir betur...

» 19 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 12:28:49 / bensen

28.01´07

Afhverju er alltaf verið að skora á mig.. finnst ykkur ég virkilega svona hugmyndarík.. usspuss.. Ég skal reyna...

ég hef alveg nóg að gera þessa dagana, skipta á, gefa brjóst inná milli skreppur maður í rvik eða niðrí kjallara að taka til (fæ ekki að gera neitt annað) og ekki má nú gleyma að elda handa húsgagninu svona svo hann klári einhverntíman þetta rafmagn (kemur bara þegar honum er boðið í mat) :haha::haha::haha: neinei Pétur þú ert mjög duglegur enda færðu alltaf stórt glas af kóki ;);) 

Staðan í kjallaranum er þessi

  • Eiginlega búið að klæða veggi
  • búið að mála gestaherbergið
  • búið að grunna baðherbergið
  • búið að leggja rafmagnið
  • og að sjálfsögðu er búið að taka til í gamla

aha þar hafið þið það.. Allt að gerast.. Ég er svo ógeðslega heppin að eiga bróðir sem finnst virkilega gaman að mála og ætli ég borgi ekki í sömu mynt, hjálpi honum að flytja.. Smá ábending til systkynna minna þá er þetta komið gott í bili í fluttningum ok... Næst flytjum við mömmu og pabba á elliheimilið...:haha::haha:

Jæja svo er komin mikil spenna fyrir föstudagskvöldinu. Fyrsti aðalhittingur lionsklúbbsins Kidda...(eigum við í alvörunni að hafa þetta nafn) og er mæting til Þórunnar og Árna í léttar veitingar, kannski einn bjór eða svo.. Bjöggi verður þú bílstjóri :haha::haha::haha:  Búin að redda pössun og ætla ég nú bara að láta barnapíuna sofa hérna.. Heiðbjört farðu svo að flytja hingað þá hef ég ALLTAF pössun...

ENNN aðalfréttin er sú að Pétur nokkur Húsgagn er komin með bloggsíðu.. ekki allir sem eiga húsgagn sem blogggar. Til lukku með það kallpungur.. Samt bannað að hætta að kvitta hjá mér..  Nú fer að líða að því aðég fari að bulla og ætla ég að hætta áður...

Elskið friðinn og strjúkið kviðinn...


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 15:01:48 / bensen

22. 01 ´07

Viljiði blogg.... Auðvitað blogga ég þá fyrir ykkur... Mánudagur í dag uff hvað mér fannst mánudagar alltaf svo leiðinlegir en í dag finnst mér þeir bara eins og laugard eða bara hreinlega eins og sunnud. Helgin fín og laugardagurinn æði.. Byrjaði á því að fara til Fjólu að pakka og flytja hana aðeins nær mér :haha::haha::haha:  Hún er semsagt orðin Hafnfirðingur.. Ekkert áfram KR núna.. Laugardaginn fór í að taka pínu til Omzinn bakaði pönnsur hana gestum og gangandi (segir maður ekki svona) Svo kom húsgagnið í mat og hvað haldið þið.. Haldiðið að Ómar og Pétur hafi ekki bara gengið frá hahahah hefði viljað eiga það á videoi... EN takk Pétur... Svo var skundað með börnin í pössun til Dúdda bró og svo var farið í það að spila hjá Lindu minn og Bjögga. Gulla og Siggi, Þórunn og Árni og að sjálfsögðu húsgagnið mættu líka og tókum við strákana í bakaríið í Party og co.. Hvernig var það aftur.. Sólarvörn > BANANABOAT argasta snilld... Síðan skutlaði ég fyllibyttunum á pöbban það er eins gott að þið geymduð einhvað malibu handa mér :klikk::klikk::klikk: Takk fyrir skemmtunina alskurnar mínar.. Þið eruð frábær.... Í gær fórum við svo í reykjavík að skoða innréttingar og fl.. og að sjálfsögðu var kíkt við í hafnafjörð...

og útí allt annað þá er verið á fullu í kjallaranum og hugsa ég að ég verði komin í sturtu áður en ég veit af.. ekki veitir nú af :haha::haha: og þá er ég komin með 193 fm í fullri notkun.. nóg pláss fyrir næturgesti og bara gesti yfir höfuð... Kannski maður haldi bara upp á afmælið sitt þar sem maður verður nú 2? í ár8|8|

Jæja nóg í bili... Annars afhverju kvittaði enginn  af þessum 99 sem komu á síðuna mína á laugard.. skrítið..

Með kæri kveðju

Lýður Oddsson


» 34 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 23:33:57 / bensen

...

hehe hver man ekki eftir THE BOYS...

http://youtube.com/watch?v=WmRsprT4Wj0 

Ég allavegana hlustaði á þá á hverjum degi og ogt á dag. Minnir að á endanum hafi ég gefið Gebbu frænku diskinn því henni langaði svo í hann....   Snilldin ein :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 12:03:06 / bensen

15 01 ´07

Jæja nenni eiginlega ekki að blogga enn það er svo mikil pressa á manni að ég ætla að henda smá inn...

Helgin var bara fín vorum komin í reykjavík um 9 á föstudagsmorguninn með Óla spóla til augnlæknis og kom það bara ágætlega út þurfum að mæta með hann aftur í nóv/des til að athuga hvort það séu einhverjar breytingar.. hann er sem sagt með pínu sjónskekkju og svo fjarsýnn enn það er svo lítið að hann þarf ekki að nota gleraugu allavegana ekki eins og er kemur betur í ljós í haust.. Svo fórum við bara að vesenast í borg óttans, kíktum í vestubæinn til Fjólu og svo kíktum við á nýja húsið hennar í hafnó city og leist okkur bara vel á það þó sérstaklega gardínurnar :haha::haha::haha: Skil ekkert í þér Fjóla að vilja þær ekki... Föstudagskvöldið fór bara í leti..  Laugardagsmorguninn var aðeins öðruvísi en vanalega nágrönnunum að þakka bingbingbangbang.. Síðan ætluðum við að ver úper dugleg í kjallaranum að pakka niður og tæma hann enn vorum einhvernveginn ekki að nenna þessu þannig að það var sett í EINN kassa :haha: ógeðslega dugleg. Þórunn og Árni buðu okkur svo í mat. Takk fyrir það :)  Sunnudagurinn fór í það að jeppast já það er SNJÓR í grindavík Pétur , Þórunn og Árni, Hildur og Bergvin, Margeir og Guðlaug, Heiðar og Reynsi komu líka.. Leiðin lá á vigdísarvelli eða einhvert þangað og komst Jimmyinn allaleiðina að skiltinu heheh þannig að Pétur kom með okkur í bíl. Við vorum nú aðalega að draga þessa litlu jeppa upp. Þórunn skil ekkert í þér að vera á svona malbiksbíl heheh djók.. Enn ágætisferð.. Svo um kvöldið fórum við í bíó og að sjálfsögðu kom húsgagnið með.. Takk fyrir pössunina Fjóla :) ég fer alveg að koma að pakka niður með þér..

Dagurinn í dag fer bara í það að vera heima með gormunum, taka til og brjóta saman þvottinum. Ólafur er nebla lasinn þannig að það verður bara kósýdagur hjá okkur þannig að ef ykkur langar að koma í heimsókn þá er þetta dagurinn til þess því það er alvegbókað að við séum heima :P:P:P:P

Jæja ætla að fara að þrífa ef ske kynni að mr. shine kæmi í heimsókn (þá er betra að allt sé hreint og fínt) heheheheheh og Pétur bíð spennt eftir traðenbloggen.is hehe

Beggan kveður bingbingbangbang (spurning að læra tælensku)


» 33 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 14:51:48 / bensen

Hvernig bjór ertu :)

You Are Heineken
You appreciate a good beer, but you're not a snob about it.
You like your beer mild and easy to drink, so you can concentrate on being drunk.
Overall, you're a friendly drunk who's likely to buy a whole round for your friends... many times.
Sometimes you can be a bit boring when you drink. You may be prone to go on about topics no one cares about.


http://www.blogthings.com/whatsyourbeerpersonalityquiz

Allir að prófa

Beggan on fire í bloggheiminum (",)


» 13 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 13:28:48 / bensen

08.01´07

Ahhh jólin loksins búin, og er ég þegar búin að taka niður allt jólaskrautið og meira að segja jólagardínurnar. Allt komið ofan í kassa sem verður ekki opnaður á næstunni.  Sonurinn fór að snýkja á þrettándanum var klæddur sem spiderman enn hann fór í nokkur hús svo bara nennti hann þessu ekki meir, nammigrísinn sjálfur, Þegar að hann var hættur fórum við á mánagötuna í mat til tengdó svo labbaði stórfjölskyldan niðrá bryggju á þrettándagleðina og verð ég nú bara að viðurkenna að ég veit ekkert hvað var verið að syngja eða tala um 8|8| Svo þegar að fólkið loksins þagnaði þá byrjaði líka þessi rosa flotta flugeldasýning... hifive fyrir björgunarsveitina.. Það er sko langt síðan að ég sá svona flotta sýningu (hefði samt frekar viljað fá kauphækkun heldur að sjá grindavíkurbæ sprengja upp alla þessa peninga) Ennnn svo var röltað heim aftur og jesús minn hvað mér var kalt, var allt kvöldið að reyna að ná upp líkamshitanum. Svo fórum við Ómar og Bríet bara á rúntinn en Ólafur svaf á mánagötunni..

Enn jæja má ekkert vera að þessu ætla að fara að þrífa og horfa á granna :P:P:P

og Linda nennuru lkannski að skipta um nafn svona annaðslægið bara svona svo fólk haldi að ég eigi fleiri vini :haha::haha::haha::haha: 

Beggan sem er með þrifæði í dag enn bara í dag :)


» 23 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 20:00:14 / bensen

04.01´07

Jæja Linda ég tek þig í bakaríið...

Ógeðslegt veður er alveg búin að fá nóg.. Vonandi kemur Gulla með góða veðrið með sér heim. Eða Þórunn sem er alveg búin að láta mann vita að hún sé að fara til London... þú mannst bara að kaupa eitthvað fallegt handa mér :haha::haha:

Ein spurning er ég virkilega svona löt eða hvað er málið. Fólk verður alltaf ægilega hissa þegar að ég segist hafa labbað heiman frá mér, eins og ég búi austur á ísólfsskála, HVAÐ ER AÐ FÓLK ég bý bara austur í hverfi ekki á ÍS'OLFSSKÁLA :|:|:|:|

Svo eru bara jólin að vera búin og verð ég að viðurkenna það að ég er eiginlega hálf fegin er alveg búin að fá nóg af þessu jólaskrauti, er alltaf að sjá það betur og betur að ég er ekkert jólabarn. Þoli ekki að festa alltaf sömu sogskálarnar með jólaseríunum í gluggan. og talandi um jólatréið ég er nú bara búin að taka það niður.. Kisu Palla finnst það svo spennandi að slá í jólakúlurnar (greinilega mikill jólaköttur í sér) enn mér fannst það aftur á móti ekki eins spennandi að týna þær upp, fyrir utan allt plássið sem það tekur. Þannig að jólatréið á þessu heimili er komið niðrí kjallara og kemur ekki upp fyrr en á næstu jólum..

Ætla að láta þetta gott heita er að fara í kökur til tengdapabba hann á afmæli í dag...

Góða ferð út Þórunn og hafðu það gott..

Knus til þeirra sem kvitta :haha::haha::haha::haha:

P.s Dúddi það er almenn kurteinsi að kvitta fyrir komu sinni fyrst þú álpaðist til að kjafta frá að þú lest bloggið mitt hehehehehe


» 17 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 00:55:11 / bensen

01.01 '07

jæja nýtt kvótaár þá verð ég að hunskast að blogga... Ætla að byrja þetta með því að óska öllum vinum og ættingjum gleðilegs nýs árs.

Var að spá í að fara svona gróflega í gegnum árið 2006

  • Árið byrjaði með ógeðslega skemmtilegri ferð til Florida.. Takk fyrir skemmtunina Þórunn og Árni ;););)
  • Fór á Þorrablót í reykjahverfi sem engin má missa af
  • varð barnshafandi
  • fór í jappaferð um páskana sem endaði ömurlega þegar að það var ákveðið að fara heim kjöl :^):^)
  • Fór í útilegur
  • hætti að vinna 1. okt
  • varð tveggja barna móðir 13. nóv
  • undirbjó jólin í rólegheitum (aldrei nokkurntíman verið svona tímanlega)
  • endurheimti húsgagnið
  • opnaði pakkana og borðaði helling af góðum mat.
  • og síðast en ekki síst hélt uppá nýtt ár í faðmi fjöskyldunnar:D:D:D

Næsta ár lofar vonandi góðu.. Það sem er á plani er

  • Hjálpa systir að flytja
  • skoða nýja krílið hennar
  • græja kjallarann
  • Hanga með kallinum :haha::haha::haha: meðan að hann er í fæðingarorlofi
  • Fara til Florida með Þórunni og Árna (er þaggi)

Þá held ég að það sé komið... Enn talandi um florida þá er ég að deyja úr spenningi veit ekki einu sinni hvort eða hvenar við förum enn hugurinn er allavegana komið í mollin og nike átlettið, liggja flatmaga á ströndinni og ég veit ekki hvað og hvað 8)8)

Út í allt aðra sálma hvað er málið með þetta blessaða áramótaskaup.. gvuð hvað það var leiðinlegt hvar eru gæjarnir sem gerðu áramótaskaupin 80 og eitthvað þegar að Laddi var uppá sitt besta og fleiri.. ég vil sjá svoleiðis áramótaskaup.. Svo þegar að ég var á leiðinni heim með fjölskylduna þ´´a var mér hugsa til þess að það voru akkurat 10 ár frá því að ég smakkaði áfengi í fyrsta skiptið. Gvuð hvað það var skemmtilegur tími að hanga uppá landsbankatúni og hitta alla fara á brennuna og syngja eins hátt og maður gat... en það eru víst breyttir tímar nú er maður þroskaðari komin með fjölskyldu og farin að sofa um 4 á gamlárskvöld. Hefði maður trúað því ef einhver hefði sagt við mann að 2006 væri maður komin með 2 börn, kall og hús og færi heim að sofa kl 3 hehe ónei ég hefði sagt við þann "Haltu kjafti"....

Jæja ætla að hætt að bulla hérna og fara að koma mér og mínum í bólið.. svo maður vakni nú fyrir hádegi ekki kl 13:30 eins og í dag :|:|:|

Svo er alveg tilvalið að kvitta fyrst þið eruð að kíkja hérna inn á annað borð :D:D:D Það er svo miklu skemmtilegra :P

Beggan kveður þá í bili og hver veit nema ég blogga eitthvað á næstunni.. Fyrst það er nú koið nýtt ár...


» 15 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 14:02:41 / bensen

Í kvöld jólin erað koma...

Góðan dag.. Sko ég ætla að byrja á því að afsaka þessa "leti" Ég var búin að skrifa alveg helling um daginn en hvað gerðist það VISTAÐIST ekki þannig að ég fór í fýlu og hef ekki bloggað síðan. Þannig að þetta er tilraun nr. 2 :)

Margt búið að breytast á þessu heimili eins og flestir vita þá eignaðist ég yndislega en mjög ákveðna prinsessu þann 13. nóv. Fæðingin gekk mjög vel eiginlega alltof vel því það munaði minnstu að Ómar greyið hefði þurft að taka á móti stelpunni á brautinni. Fékk fyrstu verki kl 6:30 fór svona að tía mig af stað um 8. kl 8:10 skutlaði ég ólafi til mömmu og brunaði á stað, var komin 8:30 á spítalan og kl 8:47 fæddist þessi líka gullfallega og fullkomna prinsessa. Ómar hringdi í mömmu 8:50 og tilkynnti henni það að það væri komin stelpa enn neinei hún trúði honum ekki endaði með því að hann sendi henni mynd í tölvuna þá loksins trúði hún þessu. Enda kannski ekki skrítið við vorum nýbúin að koma með ólaf til hennar átti kannski ekki von á samtali strax. Enn allavegana þá var hún 3880 gr eða 15 1/2 merkur og 52 cm.. Ólafur er nátla í skýjunum yfir systir sinni og segir henni 10 x á dag hvað hann elskar hana. Svo var hún skírð 8. des og fékk nafnið Bríet María, bróðirinn ekki sáttur við nafnið fyrst sagði bara " mamma mér finnst þetta ekkert gott nafn" :$:$ en ég held að hann sé sáttur í dag...

og yfir í annað AÐFANGADAGUR í dag og spennan á heimilinu er gríðarleg þá meina ég hjá Ólafi.. Hann fær nebla að opna alla pakkana fyrir systir sína líka og byrjaði morguninn þannig mamma má ég núna opna pakkana :D:D:D Ekki alveg að skilja það að maður þurfi að bíða þanngað til í kvöld.

Dagurinn í dag fer svo bara í rólegheit. Keyra út pökkunum og klára að taka til síðasta draslið, baða grísina 3 (er nú að vonast til þess að ómar baði sig sjálfur enn hver veit) græja jólamatinn og leggja á borð júúú og passa köttin henni finnst jólapakkarnir mjög forvitnilegir eða aðallega skrautböndin á þeim :haha::haha: humm. svo segi ég rólegheit :haha:

Jæja fólk þá held ég að kvótinn minn sé búin þetta árið í bloggi Kannski ég leigi mér meira ef fæ þá flugu í hausinn að blogga aldrei að vita...

Gleðileg jól elskurnar mínar og hafið það gott um hátíðirnar, borðið mikið (samt að passa línurnar) farið rólega í konfektmolana og Linda ekkert jóladagsbál um kvöldið ég mun ekki ansa þér ef þú sendir sms :haha::haha::haha::haha::haha:

Jólasveinakveðja

Beggan sem er komin í jólaskap HÓHÓHÓ

Og svo syngja allir með

 

 



Skín í væna vínflösku

og huggulega bjóra.

Jólaglögg og eplasnafs

allt það ætl’að þjóra.

Dufla og daðra og leika mér

látum ill’í desember

Burt með sokk og skó

hér af vín’er nóg.

Ó hvað ég elska jólin

Von’ég hitt’á stólinn


» 17 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 19:56:47 / bensen

Stella í orlofi...

Hvað er fólk að kvarta, mætti halda að maður hefði ekkert annað að gera enn að blogga :haha::haha::haha: Það er sko alveg brjálað að gera hjá mér t.d að sofa, fara í hexa, horfa á nágranna, spila Quick brick (sem er btw ávanabindandi leikur hann er ekki einu sinni skemmtilegur) horfa á glæstar enn ég er ekki lögst það lágt að fara að glápa á hina yndislegu feitu valentínu..eigum við eitthvað að ræða það.... Ónei

Allavegana er ég komin í árs frí og er maður á fullu að gera jólahreingerninguna og svo styttist í það að maður fari að þvo pínulitlu fötin sem syni mínum finnst svooo sæt. Þetta er frekar einmannalegt líf hérna á morgnana bara við Dadda heima enn maður hefur allavegana frið til þess að sofa svona afþví maður gerir það ekki á nóttinni:^):^).

Fór í síðast sónarinn í dag og allt lítur bara vel út litla krílið orðið tæpir 10 merkur sem er held ég bara passlegt ekki nema 5 vikur eftir það er að segja ef það ætlar ekki að drífa sig svona mikið eins og stóri brósi. jæja verð að þjóta melrose place að byrja

þanngað til næst

verið hress ekkert stress og bless...

svo er allt í lagi að kvitta ég bít ekki :klikk::klikk:


» 11 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 19:42:28 / bensen

....

humm... kominn tími til að blogga.. síðast þegar ég bloggaði þá var bara júlí eða eitthvað enn núna bara komin sept... Finnst hálf óhuggnalegt hvað tíminn er fljótur að líða enn allavegana þá koma hér nokkrir punktar síðan síðast....

  • fór í sumarfrí
  • fór í fullt af útilegum
  • afrekaði að kíkja á Karen vinkonu
  • lá í leti
  • fór í heyskap
  • svaf framm að hádegi sem btw hefur ekki gerst síðan ég veit ekki hvenar
  • fór stækkandi (og geri enn)
  • náði að vaka lengur enn til tíu :haha::haha:
  • taldi niður dagana þangað til ég átti að byrja að vinna aftur (þótt svo ég hafi alveg verið tilbúin í að vera allavegana 2 vikur lengur í sumarfríi)
  • Byrjaði að vinna
  • og margt margt fleira....

Þannig var það nú... enn núna er bara verið að telja niður dagana þanngað til ég hætti get ekki beðið veit samt ekki afhverju á örugglega eftir að drepleiðast ein heima enn Linda og Gulla og Þórunn verða kannski bara duglegar að heimsækja mig og bara allir sem vilja :haha::haha::haha:

Jæja þá er best að fara að halda áfram að stjórnast og reka á eftir Ómzanum að mála:D Það er það eina sem maður má gera og er BESTUR í... Mála, mála, mála svo ég þurfi ekki að þrífa allt :P

Jæja kveð að sinni ætla ekkert að lofa að blogga fljótlega því þá geri ég það ekki...

Beggan over & Out......


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 15:23:43 / bensen

Það er komið sumar....

Jæja er þetta blessaða sumar loksins komið ??? Var orðin hálf þunglynd af þessari rigningu enn ég brosi í dag því það er loksins komin SÓL 8)8) en út í allt aðra sálma...

SUMARFRÍ á morgun vúúhhúúúú get ekki beðið nkl. kl 13:00 8)8) og ætla ég mér að nýta þetta sumarfrí vel í það að slappa af og fitna :) maður gerir víst ekki mikið annað þessa dagana enn að éta og stækka, ég hélt að það væri ekki hægt að borða svona mikið enn ójú ég er sko búin að komast af því.

Fór í 20 vikna sónar á þriðjudaginn og gekk það bara rosalega vel allt lítur vel út og litla krílið er væntanlegt 14. nóv. Stóri bróðir er bara spenntur og gerir ekki annað enn að spurja hvenær nóvember kemur og hvort að mamman ætli ekkert að fara að kaupa bleyjur og snuddu handa litla barninu.. Hann á eftir að verða rosalegur ef að hann fengi að ráða þá væri komin fullur fataskápur af stelpufötum, hann er alveg viss um að þetta sé stelpa og það er bara ekki í umræðunni að þetta sé strákur....

enn nóg í dag ætla að fara í sólbað út á tröppum ekki veitir af að ná sér í pínu lit. Veriði svo dugleg að kvitta annars nenni ég þessu ekki :$:$

þangað til næst........


» 12 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 15:35:18 / bensen

Sólin er risin....

Jamm og jæja er ég að nenna þessu.... ónei aldeilis ekki en best að blogga smá fyrir ykkur sem KVITTIРalltaf.

Það er búið að ganga á ýmsu hér á bæ. Bumban mín stækkar á hverjum degi og sé ég ekki fyrir endanum á þessu veit ekki hvernig ég á eftir að verða í lok október 8|8|8|. Ég var í "fríi" í síðustu viku var rúmliggjandi allan tíman og meira segja lögð inná spítala í sólarhring. Fékk svona hrottalega þvagfærasýkingu og ætla ég ekki að lýsa verkjunum sem fylgdu því.. En ég er greinilega ekki sú eina sem er óheppin því að kisa Palli slasaði sig.  Hún var að athuga hvort að Patrolin væri nokkuð bilaður og lenti í viftuspaðanum á bílnum og fékk svona óskemmtilegan skurð á kinnina og það þurfti að sauma hana og er hún frekar grimm á svipinn eins og er en vonandi að það lagist,  vonum bara að hún hætti þessum leiðangri, það er ekki eins og Petrolin sé þekktur fyrir að bila ;);););).

Sjóarinn síkáti var nátla bara snilld og þakka ég frænku minni fyrir skemmtilega heimsókn.. Laugardagskvöldið borðuðum við hjá Pétri og Írisi og svo var farið í drykkjuleik mér til mikillar skemmtunar og var ég farin að efast um að komast á ballið með þessu liði.. Enn Pétur og Ómar áttu kvöldið þvílíkir snillingar þar á ferð og er sko mikið búið að hlæja af video'inu af þeim... sem btw Pétur á eftir að sjá :haha::haha::haha:.

Jæja best að fara að huga að lasarusinum mínum..

Elskið friðinn og strjúkið kviðinn...

Beggan kveður að sinni


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Dagsetning
10. febrúar 2012